Ferðaþjónustan Dæli

Ferðaþjónustan Dæli
Ferðaþjónustan Dæli

Dæli, Víðidalur
531 Hvammstangi (kort)

Sími: +354 451 2566 / +354 864-2566
Netfang: daeli@daeli.is
Veffang: www.daeli.is
Facebook

Ferðaþjónustan Dæli í Víðidal hefur verið rekin, við góðan orðstír, frá árinu 1988. Í Dæli er boðið upp á fjölbreytta aðstöðu og afþreyingu fyrir ferðamenn af ýmsu tagi, bæði einstaklinga og hópa.

Herbergi með baði (umbúin). 10 tveggja manna herbergi með baðherbergi. Í  tveim af þessum herbergjum er einnig að finna svefnloft sem gefur möguleika á sniðugum lausnum þegar að fjölskyldur eru á ferð.

Gamli bærinn er á tveimur hæðum. Á neðri hæð eru 4 tveggja manna herbergi (m/handlaug) ásamt sameiginlegu baðherbergi með sturtu, á efri hæðinni er er svo að finna setustofu, sjónvarp og eldhúskrók.

Svefnpokapláss eru í smáhýsum. Þau eru 6 talsins og er hvert hús 12 m² að stærð. Húsin eru byggð í hring og eru mjög vinsæl aðstaða fyrir ættarmót og annað slíkt. Í hverju húsi eru 2 kojur, í neðri kojum eru 90 cm springdýnur og í þeim efri eru svampdýnur. Snyrting er í hverju húsi og kalt rennandi vatn. Eldunaraðstaða og sturtur eru svo í Aðstöðuhúsinu rétt hjá.

Aðstöðuhús. Húsið var reist árið 1997 og er um 73 m² að stærð. Í því er sturtu- og snyrtiaðstaða fyrir bæði karla og konur. Þar er einnig matsalur með eldunaraðstöðu. Fyrir utan húsið er verönd með borðum og stólum ásamt útigrillum. Rétt við húsið eru svo leiktæki fyrir börnin.

Tjaldstæði. Við tökum á móti tjaldferðalöngum. Hjá okkur er pláss fyrir tjaldvagna, fellihýsi og önnur tjöld. Eldunar- og snyrtiaðstaða er í Aðstöðuhúsi. Á tjaldstæðinu er rafmagn.

Sumarhús. Eitt sumarhús er leigt út, bæði í viku í senn og til styttri dvalar. Í húsinu er eitt svefnherbergi og svefnloft, baðherbergi, setustofa (sjónvarp) og eldhúskrókur.


Svæði

Map
Menu