Fréttir

28. febrúar - Arctic Coastline Route kynningarfundur

Þriðjudaginn 28. febrúar er boðið til kynningarfundar um ferðamannaveginn "Arctic Coastline Route".
Fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu og annað áhugafólk er hvatt til að mæta á fundinn!

Ferðamannavegurinn liggur að mestu meðfram standlengju Norðurlands og er tilgangurinn að þróa nýtt aðdráttarafl fyrir norðurhluta Íslands. Verkefnið hófst árið 2016 og er tilgangur fundarins að gefa innsýn inn í markmið, áherslur og fyrstu skref. Tækifæri gefst til umræðna og áhrifa á verkefnið og er m.a. leitað hugmynda á endanlegt nafn leiðarinnar.

Verkefnastjóri Arctic Coastline Route Christiane Stadler mun kynna verkefnið og fer fundurinn fram á ensku.

Fundarstaðir: Skagaströnd kl. 13-14:30 Kaupfélagshúsið (Einbúastíg 2)

Hvammstangi kl. 16:30-18 Selasetrið

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku hér.


Svæði

Map
Menu