Fréttir

Að loknum Eld í Húnaþingi

Hin árlega Unglistahátíð í Húnaþingi vestra Eldur í Húnaþingi stóð yfir í síðustu viku og lauk með dansleik að venju á laugardagskvöldi. Eins og alltaf þá var hátíðin heimafólki til mikils sóma og í raun ótrúlegt hvað þetta smáa samfélag getur orkað miklu þegar það tekur saman höndum. Stútfull dagskrá var alla daga hátíðarinnar frá morgni til kvöld og íbúar duglegir við að skreyta héraðið og taka þátt í hátíðinni. Fjöldi gesta heimsótti svæðið og naut alls þess sem boðið var uppá.
Fréttavefur svæðisins www.nordanatt.is er duglegur við að fjalla um viðburði á svæðinu og þar má finna umfjöllun og ljósmyndir frá hátíðinni.


Svæði

Map
Menu