Fréttir

Ásgeir með tónleika á Hvammstanga

Ásgeir Trausti hefur átt frábært tónlistarár og vart hægt að segja annað en að hann sé orðinn heimfrægur. Platan hans Dýrð í dauðaþögn sem kom út fyrir rúmu ári síðan hefur fengið frábær viðbrögð og síðan er Ásgeir búinn að fara ótal tónleikaferðir um nánast allan heim. Væntaleg er svo ný útgáfa af plötunni á ensku undir nafninu „In the Silence“.
Nokkuð ljóst að annað viðburðaríkt og spennandi ár er framundan hjá Ásgeiri.

Eins og á síðasta ári þá er Ásgeir að ljúka árinu með tónleikum á Íslandi og að sjálfsögðu kemur hann á heimaslóðir og heldur tónleika í félagsheimilinu á Hvammstanga sunnudagskvöldið 29. desember, sjá nánar á www.nordanatt.is. Miðasala á tónleikana er á www.midi.is.


Svæði

Map
Menu