Fréttir

Aukning ferðamanna milli ára

Samkvæmt gestakomum í upplýsingamiðstöðina í Selasetri Íslands komu 80% fleiri ferðamenn í Húnaþing vestra í maímánuði í ár en í maí 2014. Unnur Valborg Hilmarsdottir sagði í samtali við Morgunblaðið að það sé útlit fyrir að það líti út fyrir að sumarið verði gott fyrir ferðaþjónustuaðila á svæðinu.

Unnur segist vita til þess að ferðamenn hafi komið sérstaklega í Húnavatnssýsluna til að sækja heim sögustaðina sem fjallað er um í bókinni Náðarstund, eftir Hannah Kent.

 

 


Svæði

Map
Menu