Fréttir

Fjölgun gesta á Selasetri Íslands

Selasetur Íslands
Selasetur Íslands

Húnaþing vestra fer ekki varhluta af fjölgun ferðamanna á Íslandi. Ánægjulegt er að segja frá því að gestakomum á upplýsingamiðstöð ferðamanna sem staðsett er á Selasetri Íslands á Hvammstanga hefur fjölgað umtalsvert í sumar. Árið 2014 komu rétt rúmlega 20 þúsund gestir allt árið í upplýsingamiðstöðina. Í ár er gestafjöldi þegar kominn í 25.500. Gera má ráð fyrir að heildargestakomur ársins verði því á bilinu 26-27 þúsund. Það er tæplega 30% aukning á milli ára.

 


Svæði

Map
Menu