Fréttir

Norðurljós næstu daga

Samkvæmt Veðurstofu Íslands eru góðar líkur á flottum norðurljósum næstu daga eða allt fram til sunnudags 23. nóvember. Kemur til að bæði verður nokkuð léttskýjað og einnig er virkni í háloftunum talsverð og eykur það líkurnar til muna.

Fyrir ferðamenn er ekki svo langt að skreppa t.d. frá Akureyri eða Reykjavík norður í Húnaþing vestra og njóta kyrrðarinnar og þeirrar einstöku upplifunar sem er að sjá norðurljósin fjarri öllum skarkala þéttbýlis. Næga gistingur er að fá á svæðinu og einnig margt annað hægt að gera sér til skemmtunar í leiðinni.


Svæði

Map
Menu