Fréttir

Grettishátíð að hefjast í dag

Grettishátíð hefst í dag með fjölbreyttri dagskrá í Grettisbóli á Laugarbakka. Spes Sveitamarkaður er opinn alla daga, víkingatjöld eru komin á svæðið og þar verður sýnt handverk og handverksvinnsla. Víkingaleikir verða í gangi á svæðinu, hægt að skjóta úr boga, fara í kubbspil og hnefatafl og fleiri forna leiki. Víkingar verða á svæðinu og sýna vopn og bardaga. Sjá dagskrá á www.grettistak.is.

Bent er sérstaklega á að klukkan 19:00 á laugardagskvöldið verður kveikt upp í grillinu í Grettishringnum og opið fyrir alla að mæta með kjöt og annað góðmeti á grillið og njóta þess að borða kræsingarnar í góðum félagsskap í Grettishringnum. Víkingaleikir verða á staðnum, kubbspil, bogfimi, axarkast, aflraunir og fleira til að skemmta sér við.

Á sunnudeginum er síðan hin árlega aflraunakeppni um Grettisbikarinn, þar sem heimafólk keppir um titilinn sterkasti karl og kona Húnaþings vestra, en allir eiga kost á að reyna sig í keppninni. Finna má reglur keppninnar á www.grettistak.is og skráning á staðnum og á netfangið grettistakses@gmail.com.


Svæði

Map
Menu