Fréttir

Hvítserkur vekur athygli

Hvítserkur vekur stöðug meiri athygli og hefur núna verið valinn einn af tólf mest spennandi óþekktum stöðum heimsins samkvæmt Huffingtonpost. Þar er hann fjórum sætum fyrir ofan Gullfoss. Líklega styttist í að Hvítserkur hætti að teljast á meðal "óþekktra" fyrirbæra í heiminum, svo víða hafa birst af honum myndir. Einnig má reikna með að það séu vel yfir milljón manns sem hafa komið í heimsókn út á Vatnsnes og séð hann með eigin augum.

Sjá umfjöllun á www.huffingtonpost.com.

 


Svæði

Map
Menu