Fréttir

Námskeið um fuglaskoðun í ferðaþjónustu

Þriðjudaginn 21. apríl n.k. standa Ferðamálasamtök Norðurlands vestra fyrir námskeiði um fuglaskoðun í ferðaþjónustu fyrir ferðaþjónustuaðila og áhugafólk um fuglaskoðun.

Kjartan Bollason lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum, umhverfisfræðingur og menntaður leiðsögumaður, mun leiða námskeiðið.

Námskeiðið er sett upp sem hluti af þróun Fuglastígs á Norðurlandi vestra en í sumar mun koma út fyrsta fuglaskoðunarkortið fyrir svæðið á vegum samtakanna. Á námskeiðinu verður fjallað um vöruþróun á náttúrutengdri ferðaþjónustu með áherslu á góða umgengni gagnvart náttúru og samfélagi og fjárhagslegan hagnað fyrirtækis eða samfélags.

Farið verður í eftirfarandi efnisþætti og þeir ræddir í samhengi við þróun fuglaskoðunarstígs á Norðurlandi vestra.

1. Hvað einkennir ferðamenn sem koma til fuglaskoðunar?
2. Hvaða innviðir eru nauðsynlegir til að taka á móti slíkum ferðamanni?
3. Hvaða þjónustu vilja/þurfa þeir sem sækjast eftir því að skoða fugla?
4. Hvaða þekkingu þarf ég/ferðaþjónustuaðili að búa yfir?
5. Hvaða skyldur hef ég sem býð upp á fuglaskoðunarstíg/-stað gagnvart bæði náttúru og samfélagi?
6. Náttúrutúlkun og leiðsögn - leiðir til að tengja ferðamanninn við náttúruna.
7. Gerð ferðavörunnar – hvað þarf til að ná á ferðamanninn?
8. Samvinna fyrirtækja – mikivægi þess að efla sitt tengslanet til að styrkja sitt fyrirtæki.

Námskeiðið fer fram á Hótel Blönduósi, þriðjudaginn 21. apríl kl. 10:00 til kl. 16:00. Léttur hádegisverður og kaffi innifalið. Verð 5.000 kr.

Skráning fer fram á netfanginu selasetur@selasetur.is eða í síma 451 2345.
Skráning þarf að hafa borist í síðasta lagi kl. 12:00 mánudaginn 20. apríl n.k.

 

 


Svæði

Map
Menu