Fréttir

Réttir haustið 2014

Fjárréttir eru að hefjast og þær fyrstu um næstu helgi, dagana 5. og 6. september. Bændur eru þar af leiðandi komnir til heiða í leit að fé og hrossum. Mikið líf og fjör fylgir réttarstörfum, margir fara ríðandi í göngur og er tilkomumikið að sjá bændur koma að fjalli með stóra hópa fjár. Mannfagnaður er í réttum og veitingar til sölu. Vísast eru réttarböll að afloknum réttarstörfum.  Margt annað er hægt að gera sér til skemmtunar á þessum tíma og ferðaþjónusta enn í fullum gangi og auðvelt að nálgast gistingu og veitingar á svæðinu.
Fjárréttir eru næstu þrjár helgar, en eftir það taka stóðréttir við og eru fram í október.

Fjárréttir:
Valdarásrétt í Fitjárdal         föstudagurinn  5. september  um kl. 9.00
Víðidalstungurétt í Víðidal    laugardagurinn 6. september um kl. 10.00
Hrútatungurétt í Hrútafirði     laugardagurinn 6. september um kl. 9.00
Miðfjarðarrétt í Miðfirði         laugardagurinn 6. september um kl. 9.00
Hamarsrétt á Vatnsnesi       laugardagurinn 13. september
Þverárrétt í Vesturhópi         laugardagurinn 13. september
Hvalsárrétt í Hrútafirði          laugardagurinn 20. september um kl. 16.00

Stóðréttir:
Þverárrétt í Vesturhópi         laugardagurinn 27. september
Víðidalstungurétt í Víðidal    laugardagurinn 4. október


Svæði

Map
Menu