Fréttir

Réttir haustið 2015

Fyrstu réttir haustsins í Húnaþingi vestra hefjast 5. september n.k. en þá verður réttað í Hrútatungurétt og Miðfjarðarrétt. Mikið líf og fjör fylgir réttarstörfum, margir fara ríðandi í göngur og er tilkomumikið að sjá bændur koma að fjalli með stóra hópa fjár.

Mannfagnaður er í réttum og veitingar til sölu. Vísast eru réttarböll að afloknum réttarstörfum. Margt annað er hægt að gera sér til skemmtunar á þessum tíma og ferðaþjónusta enn í fullum gangi og auðvelt að nálgast gistingu og veitingar á svæðinu.

Réttir haustsins verða á eftirtöldum dagsetningum:

Laugardagurinn 5. september
Hrútatungurétt í Hrútafirði.
Miðfjarðarrétt í Miðfirði.

Föstudagurinn 11. september
Valdarásrétt í Fitjárdal. Réttarstörf hefjast kl. 09:00.

Laugardagurinn 12. september
Hamarsrétt á Vatnsnesi.
Víðidalstungurétt í Víðidal. Réttarstörf hefjast kl. 10:00.
Þverárrétt í Vesturhópi.

Laugardagurinn 19. september
Hvalsárrétt í Hrútafirði.

Laugardagurinn 26. september
Þverárrétt í Vesturhópi. Stóðrétt. Réttarstörf hefjast kl. 12:30.

Laugardagurinn 3. október
Víðidalstungurétt í Víðidal. Stóðrétt. Réttarstörf hefjast kl. 10:00.

 

 


Svæði

Map
Menu