Fréttir

Selasetrið standsett

Frá 1. maí hefur Selasetrið á Hvammstanga verið opið alla virka daga frá 9-16 og eftir 15. maí verður opið 9-19 alla daga vikunnar í allt sumar. Þar er þessa dagana verið að gera klárt fyrir komandi ferðasumar með breytingu á afgreiðslu og upplýsingamiðstöð og bættri nýtingu í verslunarrými. Þá er nýtt starfsfólk tekið til starfa í afgreiðslu safnsins. Það er því bjart sumar framundan við höfnina á Hvammstanga. 


Svæði

Map
Menu