Flýtilyklar
Fréttir
Selasetur Íslands eykur opnunartímann
13.04.2015
Selasetur Íslands hefur stóraukið opnunartíma setursins í apríl- og maímánuði. Í apríl er opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 12:00 til kl. 15:00.
Í maí verður svo opið alla daga frá kl. 09:00 til kl. 16:00 en undanfarið ár hefur verði lokað um helgar fyrri hluta maímánaðar. Á Facebook-síðu setursins kemur fram að þessi aukni opnunartími er tilkominn vegna stóraukinnar aðsóknar. Setrið hefur fengið fleiri gesti til sín það sem af er aprímánuði en allan aprílmánuð í fyrra.