Flýtilyklar
Fréttir
Selasigling hefur siglingar
14.05.2014
Selasigling á Hvammstanga hefur siglingar í dag, 14. maí. Í sumar bjóða þeir Elli og Kjartan upp á daglegar sela- og náttúruskoðunarferðir kl. 10:00, 13:00 og 16:00. Einnig er í boði fyrir hópa (8 manns eða fleiri) að komast í sjóstangveiði og eru þær ferðir kl. 18:00. Frá 10. júní er einnig í boði miðnætursiglingar og er þá brottför kl. 23:00 í ógleymanlega siglingu í átt að miðnætursólinni sem dormar við hafflötinn.
Sjá nánar á www.sealwatching.is og á Facebooksíðu.