Fréttir

Stór vika í Húnaþingi vestra

Straumurinn liggur í Húnaþing vestra þessa dagana enda fjölmargt þar um að vera þessa vikuna. En á miðvikudaginn hefst hátíðin Eldur í Húnaþingi með fjölbreyttri dagskrá fyrir börn og fjölskyldur. Í vikunni er einnig fjallaskokk yfir Vatnsnesfjall, Grettishátíð með aflraunakeppni og víkingum, selatalningadagurinn mikli og víkinganámskeið fyrir börn svo eitthvað sé nefnt af fjölbreyttri dagskrá.

Tilvalið er fyrir fjölskyldur og annað ferðafólk að kíkja við og stoppa um stund í Húnaþingi vestra og njóta alls þess besta sem svæðið hefur fram að færa.  Náttúran er einstök og hægt að skoða seli í sínu náttúrulega umhverfi hvort sem er frá landi eða sjó.

Verið velkomin að njóta með okkur í Húnaþingi vestra. Allar upplýsingar um dagskrá má nálgast hér á síðunni. Sjá einnig www.eldurhunathing.com, www.grettistak.is og www.selasetur.is


Svæði

Map
Menu