Fréttir

Sumaropnun á Hlöðunni

Hlaðan kaffihús á Hvammstanga opnaði laugardaginn 2. maí. Opnunartími í maí er frá 9:00 – 21:00 alla daga nema sunnudaga, þá opnar kl. 10:00. Á Hlöðunni er hægt að fá fjölbreyttar veitingar, morgunverð, súpu og léttan hádegisverð og kaffi með fjölbreyttu bakkelsi og tertum. Vínveitingaleyfi er á staðnum og mjög notaleg stemming. Kaffihúsið er staðsett í hjarta bæjarins við Syðri-Hvammsána niður við höfnina á Hvammstanga. Þessa fyrstu daga sem hefur verið opið á Hlöðunni er greinilegt að það er auknin ferðamanna frá því sem var í fyrra.

Sjá einnig facebooksíðu.


Svæði

Map
Menu