Fréttir

Svamlandi hvalir í Miðfirði

Í lok janúar var hægt að fylgjast með hvölum í Miðfirði þar sem þeir héldu til í nokkra daga. Fréttavefurinn Norðanátt.is birti hreyfimyndir á vef sínum, en þær voru teknar frá bryggjusvæðinu á Hvammstanga.

Það þarf því ekki endilega að fara langt til að fylgjast með hvalalífinu, svo það er betra að vera með myndavél við höndina á ferðalagi um Húnaþing vestra til að festa lífið á filmu.

Fleiri hreyfimyndir er að finna á Norðanátt.is.

Hvalalíf í Miðfirði 

 

 

 


Svæði

Map
Menu