Flýtilyklar
Fréttir
Sviðamessa í Hamarsbúð
30.09.2015
Árleg sviðamessa Húsfreyjanna á Vatnsnesi verður haldin í Hamarsbúð á Vatnsnesi föstudaginn 9. og laugardaginn 10. október. Eins og undanfarin ár verður boðið upp á ný, strjúpasöltuð og reykt svið, auk sviðalappa og kviðsviðum ásamt gulrófum og kartöflum.
Bæði kvöldin hefst borðhald kl. 20. Húsið opnar kl. 19.
Tekið er á móti pöntunum frá og með 5. til 8. október eftir kl. 17. í síma 847 7845 (Bára).
Tekið er á móti pöntunum frá og með 5. til 8. október eftir kl. 17. í síma 847 7845 (Bára).
Miðaverð er 5000 krónur.
Húsfreyjurnar hafa undanfarin ár varið ágóðanum í góðgerðarmál í héraði og verður engin breyting á því í ár.