Fréttir

Uppskeruhátíð hestamanna í Húnaþingi vestra

Hestamannafélagið Þytur heldur uppskeruhátíð
Hestamannafélagið Þytur heldur uppskeruhátíð

Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka Vestur-Húnavatnssýslu og Hestamannafélagsins Þyts 2015 verður haldin laugardagskvöldið 31. október í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Í boði verður glæsilegur matseðill og mikil skemmtun

Forsala miða og pantanir fara fram í Söluskálanum á Hvammstanga og lýkur henna miðvikudaginn 28. október

Bessastaðir, Gauksmýri, Lækjamót og Syðri-Vellir eru tilnefnd sem ræktunarbú ársins

Allir eru velkomnir á þessa frábæru skemmtun.

Uppskeruhátíð æskulýðsstarfs Þyts
Föstudaginn 30. október verður æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Þyts með uppskeruhátíð fyrir börn og unglinga sem tóku þátt í starfinu hjá Þyt síðastliðinn vetur og sumar. Hátíðin verður í Sveitasetrinu Gauksmýri.


Svæði

Map
Menu