Fréttir

Víkinganámskeið 22-23. júlí

Það styttist í næstu víkinganámskeið fyrir börn sem haldin eru í Grettisbóli á Laugarbakka. En þau verða í næstu viku, dagana 22. og 23. júlí. Í þetta sinn eru þau fyrir aldurinn 6-10 ára og þau standa frá kl. 12:00 – 17:00 báða dagana.

Á námskeiðunum verður saga Grettis sterka rifjuð upp, farið í fjölbreytta víkingaleiki, spilað kubbspil og skotið af boga og skylmst með sverðum. Börnin vinna víkingahandverk, smíða víkingavopn og elda mat að hætti víkinga. Börnin fá lánuð víkingaklæði meðan á námskeiðunum stendur.

Skráning er í síma 891-7464 og einnig á netfangið grettistakses@gmail.com og þar fást einnig allar nánari upplýsingar um námskeiðin. Sjá einnig www.grettistak.is.


Svæði

Map
Menu