Fréttir

Vinna við heimasíðuna

Tilraunamynd1
Tilraunamynd1

Vinnan er komin vel á veg þegar þetta er skrifað í byrjun september 2013. Það hefur tekið mun lengri tíma en áætlað var í fyrstu að koma síðunni í loftið. Síðan er hönnuð af Stefna Hugbúnaðarhús á Akureyri og er keyrð í Moya vefumsjónarkerfi. Lögð hefur verið mikil vinna í að gera síðuna sem besta úr garði með þeirri tækni sem völ er á í dag. Þá mun síðan innihalda upplýsingar um allt er varðar ferðamál í Húnaþingi vestra og svæðið í heild sinni. Stefnt er á að síðan verði á þremur tungumálum. Íslensku, ensku og þýsku. Lögð er áhersla á að við opnun síðunnar verði íslenski og enski hlutinn fullbúinn en þýskunni verði bætt við í framhaldinu.


Svæði

Map
Menu