Verslanir í Húnaþingi vestra

Í Húnaþingi vestra er að finna fjölbreytta þjónustu og stórar og smærri verslanir. 

Kaupfélag Vestur-HúnvetningaStærsta matvöruverslun svæðisins er Kaupfélag Vestur-Húnavetninga á Hvammstanga - KVH. Og þar eru allar matvörur sem þú þarft á að halda og einnig fjöldinn allur af öðrum vörum, byggingavörum, verkfærum, tækjum og tólum, enda er KVH verslun sem þjónar öllum þörfum viðskiptavinarins. Meira að segja er þar að finna afgreiðslu Vínbúðar ÁTVR.

Aðrar verslanir á Hvammstanga eru t.d. Hlín sem hefur til sölu gjafavörur, föndurvörur, hannyrðavörur, blóm og ýmislegt fleira og upplýsingar um hana má td. finna á www.hlin.is.

Einnig er að finna ýmsar matvörur og gjafavörur í ferðamannaversluninni í Staðarskála.


Svæði

Map
Menu