Norðurljósaspá

Hvítserkur í NorðurljósumÁ vef veðurstofu Íslands er að finna spá fyrir allt landið varðandi norðurljós á himni næstu daga. Sjá www.vedur.is/vedur/spar/nordurljos Þar má sjá skýjahulu landsins sem gefur til kynna hvar vænlegast verði að sjá norðurljósin. Einnig er á sömu síðu að finna virkni sem gefur til kynna hversu björt ljósin geta orðið.

Í Húnaþingi vestra eru margir góðir gististaðir þar sem stutt er í náttúruna fjarri ljósamengun þéttbýlis sem auðveldar mjög að sjá hin stórkostlegu ljós sem stundum prýða himinhvolfið.

Svæði

Map
Menu