Í Húnaþing vestra er að finna fjölbreytta
afþreyingu. Fjölmargar áhugaverðar gönguleiðir er að finna á svæðinu. Fuglalíf er mjög fjölbreytt og aðgengilegt og hvergi
á landinu er eins auðvelt að fara í selaskoðun og hafa verið byggðir upp sérstakir selaskoðunarstaðir og hægt að fara í siglingu
frá Hvammstanga. Hestamennska er rótgróin og boðið upp á hestaferðir, hestaleigur og hestasýningar. Góðar sundlaugar og heitar laugar er
að finna á svæðinu. Fjölmörg veiðivötn og laxveiðiár eru á svæðinu. Svo eitthvað sé nefnt.