Ferðaþjónustan Neðra-Vatnshorn

Neðra-Vatnshorn
531 Hvammstanga (kort)

Sími: +354 451 2918 / +354 866 7297
Netfang: vatnshorn@vatnshorn.is
Veffang: vatnshorn.is

Á Neðra-Vatnshorn er rekið notalegt gistihús undir merkjum Hey Iceland.

Boðið er upp á gistingu í gömlu húsi sem hefur verið tekið í gegn fyrir mörgum árum.

Gisting i 1 x 2ggja manna herbergi með tvíbreitt rúm queen size, 1x twin herbergi með tvö aðskilin rúm og eitt þriggja manna tilvalið fyrir fjölskyldu, hjón með tvö börn. Hægt er að fá auka rúm í það herbergi fyrir eitt barn eða ungling.

Ennfremur er gisting í 2 smáhýsum með sérbaði 2x2ggja manna herbergjum.

Morgunmatur er í boði þar sem áhersla er lögð áhersla á íslenskt hráefni og heimatilbúnar afurðir.

Notalegt gistihúsið á Neðra Vatnshorni var byggt 1936 og hefur verið tekið í gegn og þar er í boði gisting í þremur herbergjum með vask en án baðs. Aðgangur er að sameiginlegu salerni og sturtuaðstöðu, vel útbúnu eldhúsi, notalegri stofu með sjónvarpi og lestrarefni. Heitur pottur er við húsið til að slaka á í að kvöldi dags. Í boði er heimalagaður morgunverður er byggir á afurðum af búinu og úr náttúrunni í kring.

á Neðra-Vatnshorn er stundað sauðfjárbúskapur með u.þ.b. 250 fjár. Það eru nokkur reiðhross og stóðhryssur með folöld yfir sumartímann.

Stutt er í alla þjónustu í þéttbýli og áhugaverða staði í innan við hálftíma akstur frá bænum.

Neðra-VatnshornNeðra-VatnshornNeðra-VatnshornNeðra-Vatnshorn


Svæði

Map
Menu