Fréttir

Hestaleiga á Hvammstanga

Á Hvammstanga hefur opnað hestaleiga hjá FL Hestum. Það eru þau Fanney Dögg Indriðadóttir og Elvar Logi Friðriksson sem reka FL Hesta og hvetja þau fólk til að kíkja í reiðtúr hjá þeim.

Þau bjóða upp á þæga og góða hesta og það er einnig hægt að koma til þeirra í hálftíma reiðtíma í reiðgerðinu, bæði börn og fullorðnir. Verðið er svo að hálftími kostar 5.000 kr.,ein klukkustund 7.500 kr. og tvær klukkustundir 11.000 kr. Ef veðrið er til trafala er mögulegt að fara á bak inni í 25*50m reiðhöll.

Þar sem ekki eru sérstakir opnunartímar þá geta áhugasamir pantað hjá Fanney í síma 865-8174, senda skilaboð á Facebook.com/flhestar eða prófað að kíkja við í hesthúsahverfinu sem er nálægt tjaldsvæðinu í Kirkjuhvammi.

 

 


Svæði

Map
Menu