Fréttir

Húnaþing vestra kynnt á N4

Undirritaður hefur verið samningur á milli Húnaþings vestra og sjónvarpsstöðvarinnar N4 um gerð kynningarefnis fyrir Húnaþing vestra. 

Efnið verður unnið frá apríl 2014 til apríl 2015. Í samninginum kemur fram að unnið verður m.a. að eftirfarandi verkefnum.

a)       Framleiðsla og sýningar á 4 þáttum af „Óvissuferð í Húnaþingi“.
b)       Framleiðsla og sýningar á heimildarþætti um Húnaþing vestra.
c)       Framleiðsla og sýningar á 75 innslögum frá Húnaþingi vestra í þættinum „Að norðan“.

Gerð kynningarefnisins er í samræmi við samkomulag Húnaþings vestra og verkefnisstjórnar um Sóknaráætlanir landshluta um markaðssetningu á búsetukostum, atvinnuuppbyggingu og innviðum í Húnaþingi vestra.
Sveitarstjórn Húnaþings vestra væntir þess að átak þetta verði til að varpa ljósi á þá fjölmörgu kosti sem til staðar eru í sveitarfélaginu, bæði almenna búsetukosti og tækifæri til fjárfestinga og framkvæmda auk þess sem fjölbreyttu félags- og menningarlífi héraðsins verði gerð góð skil.


Sjá nánar í tilkynningu á vef Húnaþings vestra.


Svæði

Map
Menu