Fréttir

Mannamót markaðsstofanna 2015

www.naturaliceland.is
www.naturaliceland.is

Mannamót markaðsstofanna 2015 fer fram fimmtudaginn 22. janúar 2015 kl. 11:00-16:00 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli og er þetta í annað sinn sem markaðsstofur landshlutanna setja upp þennan vinnufund fyrir samstarfsfyrirtæki sín.

Tilgangurinn með Mannamótum markaðsstofanna er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu, en aðeins samstarfsfyrirtæki markaðsstofanna geta tekið þátt sem sýnendur.

Skráning stendur nú yfir og fer hún fram á vefsíðu Mannamóta, www.naturaliceland.is. Þátttökugjald fyrir hvert fyrirtæki er 10.000 kr. og lýkur skráningu 16. janúar 2015.

Sjá nánar að Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is, og www.naturaliceland.is.

 

 

 


Svæði

Map
Menu