Fréttir

North West Hotel við þjóðveginn

North West Hotel
North West Hotel

Í Víðigerði í Víðidal, við þjóðveginn, er verið að ráðast í endurbætur á veitingaskálanum sem hefur nú fengið nafnið North West Hotel. Það eru hjónin Hallgrímur og Guðlaug sem eru eigendur veitingaskálans og vonast þau til þess að breytingarnar dragi til þeirra fleiri ferðalanga.

Hjá North West Hotel verða níu hótelherbergi í boði, sem ýmist verða tveggja manna herbergi, hjónaherbergi eða fjölskylduherbergi, öll með sér baðherbergi. Þá verður veitingasalurinn stækkaður og boðið uppá pool-borð, boltann í beinni og flottan matseðil.

Til stendur að North West Hotel opni eftir breytingar um páskana.

Frekari myndir og umfjöllun er að finna á Norðanátt.is.

 

 

 


Svæði

Map
Menu