Fréttir

Reiðnámskeið-sumardvöl á Gauksmýri 2015

Fyrstu vikurnar í júní ár hvert er haldið reiðnámskeið fyrir börn og unglinga á Gauksmýri. Engin breyting verður á því í ár og eru laus pláss á námskeiðin í júní n.k. fyrir börn og unglinga 7-16 ára.

Fyrstu tvær vikurnar dvelja þátttakendur námskeiðsins á staðnum alla vikuna, frá sunnudagskvöldi til fötudagseftirmiðdags. Reiðkennsla hefst kl. 9 alla morgna og er til kl. 15 á daginn. Eftir að reiðkennslu lýkur tekur við önnur dagskrá sem tengist útivist og náttúru.

Einstakt tækifæri fyrir unga hestaunnendur til að læra meira.
Skemmtilegt sveitaævintýri fyrir alla krakka með vandaðri dagskrá.

Frekari upplýsingar og skráning á gauksmyri@gauksmyri.is eða í síma 4512927.
Einnig er að finna upplýsingar á vefnum www.gauksmyri.com

 

 


Svæði

Map
Menu