North Wind

Sími: + 354 893 4378
Netfang: info@northwind.is
Veffang: northwind.is
Facebook

North Wind er fyrirtæki sem sérhæfir sig í ökuleiðsögn með starfsstöð á Hvammstanga. Við bjóðum upp á skipulagðar ferðir á Norðurlandi vestra einkum í Húnaþingi vestra. Einnig bjóðum við upp á ferðir sniðnar að þörfum hvers og eins viðskiptavinar. Við bjóðum upp á staðkunnuga leiðsögumenn á íslensku, ensku og þýsku fyrir allt að 14 manna hópa.

Vatnsneshringur: Skoðum allar helstu náttúruperlur á Vatnsnesi og Víðidal svo sem Ánastaðastapa, Illugastaði, Hvítserk, Borgarvirki og Kolugljúfur. Þetta er tækifæri til að skoða seli og fugla og fleiri dýr og komast í kynni við ósnortna íslenska náttúru, auk þess sem sagan er við hvert fótmál. Þessu öllu getið þið kynnst í fylgd staðkunnugs leiðsögumanns.

Náðarstundarhringur: Nú styttist í að verðlaunasaga Hannah Kent Náðarstund verði kvikmynduð með óskarsverðlauna leikkonunni Jennifer Lawrence í aðalhlutverki. Við bjóðum upp á ferð á söguslóðir Illugastaðamorðanna á Natan og Pétri, glæps er síðar leiddi til síðustu aftöku á Íslandi. Við heimsækjum m.a. Illugastaði, vettvang glæpsins, leiði Agnesar og Friðriks í Tjarnarkirkjugarði, Þrístapa þar sem aftakan fór fram og fleiri staði sem koma við sögu. Leiðsögumaður sem bæði þekkir hina raunverulegu sögu og skáldsöguna kynnir ykkur söguna ásamt hinni stórfenglegu náttúru sem svæðið býður upp á.

Við bjóðum líka upp á ferðir um Norðuland vestra sérsniðnar að þínum þörfum og óskum til að skoða náttúruperlur sem ekki eru á allra vitorði og kynnast sögu og mannlífi svæðisins í fylgd staðkunnugs leiðsögumanns.

 


Svæði

Map
Menu