Botn Miðfjarðar

Horft til austurs á góðum degi. Mynd: GMHK
Horft til austurs á góðum degi. Mynd: GMHK

Rétt sunnan við bæinn Sanda liggur vegslóð frá vegi 72 til austurs sé komið að sunnan. Hægt er að aka eftir slóðinni alveg niður að ströndinni en ekki er fært fyrir minnstu bílana. Gengið er til austurs með ströndinni. Þetta er þægileg ganga með sjávarloft í lungum, fuglakvak í eyrum og fallegt útsýni til Strandafjalla. Einn og einn selur gæti heilsað upp á göngufólkið. Gangan öll, að ós Miðfjárðarár, tekur um þrjú korter og annað eins til baka.


Svæði

Map
Menu