Sundlaugin á Hvammstanga

Sundlaugin á Hvammstanga var tekin í notkun árið 1982 og er rekin í tengslum við íþróttamiðstöðina sem stendur þar við hliðina. Sundlaugin er 25m x 11m útilaug með fjórum brautum. Þar við er heitur pottur með vatnsnuddi, barnavaðlaug og gufubað.

Einnig er hægt að fara í þreksalinn við laugina.

Verið velkomin að nota þá aðstöðu sem við bjóðum fram – aðstaðan er til fyrirmyndar!

Sjá nánar á heimasíðu sveitarfélagsins www.hunathing.is.


Svæði

Map
Menu