Hvítserkur á Vatnsnesi

Hvítserkur er einstakur klettur um 15 metra hár sem stendur í fjöruborðinu við Sigríðarstaðaós við austanvert Vatnsnes. Það eru um það bil 30 km akstur frá aðalveginum norður eftir Vesturhópi að Hvítserk og ferð sem mæla má með. Nærri Hvítserk í ósi Sigríðarstaðavatns er að finna einn besta selaskoðunarstað landsins. Þar liggja uppi á sandinum gengt ósnum eða synda í sjónum nokkur hundruð selir alla daga ársins.

Þjósaga er um Hvítserk að hann hafi í forneskju verið tröll sem bjó norður á Ströndum sem vildi brjóta niður kirkjuklukkur Þingeyraklausturskirkju. Leiðin var torsóttari en hann gerði ráð fyrir og þegar sólin reis um morguninn hafði honum ekki tekist að ljúka ætlunarverki sínu og breyttist hann  því í stein er hann leit fyrstu sólargeislana.


Svæði

Map
Menu