Tangahús Borðeyri

Tangahús, Borðeyri
500 Staður (kort)

Sími: +354 849 9852 / +354 849 7891
Netfang: tangahus@simnet.is
Veffang: http://www.tangahus.is
Facebook

Eigendur Ferðaþjónustunnar Tangahúsi á Borðeyri bjóða þig velkomin(n) að gista og dvelja í einu minnsta þorpi á Íslandi, sem á sér þó merka sögu og gerir ferðina eftirminnilega.  Á Borðeyri er hægt að njóta náttúrunnar í hvívetna og er Tangahúsið staðsett í fjöruborðinu á Borðeyri með mikla nálægð við dýralíf fjöruna og sjóinn. Friðsemd og kyrrð ríkir og hið nýja hugtak "hægur ferðamáti" (e: slow travel) á vel við á þessum stað.  Í boði eru uppbúin rúm, svefnpokapláss, barnarúm, mjög gott gestaeldhús búið öllum helstu tækjum, setustofa,  sjónvarp,nettenging, sturtur, þvottavél/þurrkari, hjólageymsla og góð aðstaða til fuglaskoðunar. Tangahús er opið allt árið.


Svæði

Map
Menu